FRISK Software International

FRISK Software International


F-PROT AVES – póstsíunarþjónusta

F-PROT AVES póstsíunarþjónustan tekur á þeim vaxandi veiru- og ruslpóstvanda sem hrjáir tölvupóstnotendur um allan heim. Með þjónustunni eru viðskiptavinir okkar verndaðir gegn þessum vanda, en án þess að teppa eða tefja fyrir nauðsynlegum tölvusamskiptum fyrirtækjanna.

F-PROT AVES þjónustan flokkar frá ruslpóst og hreinsar burt veirur, orma og aðrar hættur áður en pósturinn berst til viðskiptavina. Þetta yrirkomulag kemur í veg fyrir óþarfa álag á póstkerfi fyrirtækja og nýir viðskiptavinir þurfa engan sérstakan hugbúnað hjá sér; sérfræðingar okkar spara þeim ómakið.

F-PROT AVES þjónustan er rekin af reyndum hópi sérfræðinga á sviðum tölvuöryggis og veiru- og ruslpóstvarna sem eru meðal þeirra fremstu í heiminum. Það eru engir milliliðir í uppfærsluferli varnanna - sem er einstakt og tryggir viðskiptavinum okkar bestu vernd sem völ er á.

F-PROT AVES – veirusíun

Á undanförnum árum hefur hættan sem fylgir notkun tölvupósts vaxið. Það gerist æ algengara að veirur og ormar berist með tölvupósti og dreifi sér með ótrúlegum hraða um tölvukerfi heimsins. Aukinn rekstrarkostnaður tölvukerfa í dag er að hluta tilkominn vegna tölvuveira. Þær geta gefið tölvuþrjótum færi á að vinna skemmdarverk á kerfunum, sent trúnaðarskjöl fyrir­tækisins til óviðkomandi auk þess sem tími fer til spillis og gögn glatast. Slíkt kallar oft á kostnaðarsamar hreinsunaraðgerðir.

F-PROT AVES póstsían hefur þann kost að sérfræðingar sjá um veiruvarnir þínar. Sérfræðingar fyrirtækisins eru á vakt allan sólarhringinn og fá upplýsingar um nýjar veirur á undan öðrum tölvunotendum. Viðbragðstími okkar er því skemmri auk þess sem mikilli vinnu er létt af kerfisstjórum sem þurfa ekki sífellt að bregðast við nýjum hættum sem ógna tölvuöryggi fyrir­tækisins.

Leitað er að veirum og ormum, HTML og JavaScript misnotkun auk þess sem fylgst er með árásum á póstforrit og -þjóna. Ef póstsían finnur veiru þá er bréfið sótthreinsað og viðtakandinn fær hreinsaða útgáfu þess.

F-PROT AVES – ruslpóstsíun

Flestir notendur tölvupósts kannast við gylliboð um skjótfenginn gróða, ótrúleg lyf og önnur vafasöm tilboð sem hrúgast inn á hverjum degi.

Þessum gylliboðum fjölgar dag frá degi og hefur magn ruslpósts rúmlega sexfaldast á síðustu tveimur árum. Samkvæmt greiningarfyrirtækinu Radicati Group er ruslpóstur nú um 30% alls tölvupósts og á eftir að aukast á næstu árum.

Kostnaður vegna ruslpósts leggst að mestu leyti á viðtakandann. Ruslpóstur kostar fyrirtæki vinnustundir þar sem starfsmenn þurfa að eyða tíma í að flokka ruslpóst frá öðrum pósti. Þá þurfa fyrirtæki einnig að greiða bandvíddargjöld fyrir ruslpóst og eru því að greiða fyrir óumbeðinn auglýsingapóst. Einnig opnar ruslpóstur leið fyrir vafasamt efni sem óvíst er að fyrirtæki kæri sig um í tölvukerfi sínu.

Með F-PROT AVES ruslpóstsíunni býður Friðrik Skúlason ehf. upp á lausn til varnar ágangi ruslpósts. Það er gert með því að greina ruslpóst frá öðrum pósti og merkja hann sérstaklega áður en hann berst á póstþjón fyrirtækisins eða hafna honum.

F-PROT AVES – þjónusta

F-PROT AVES þjónustan síar allan tölvupóst, hreinsar veirusýktan póst og greinir ruslpóst. Ef ekki er hægt að veiruhreinsa tiltekið bréf er því hafnað og tilkynning þess efnis send viðtakanda. Ruslpóstur er annaðhvort sérstaklega merktur svo viðtakandi geti síað hann í sérstakt pósthólf eða honum er hafnað.

Áskrifendur F-PROT AVES þjónustunnar hafa aðgang að sóttkví í gegnum Vefinn. Þau viðhengi sem ekki er hægt að hreinsa eru geymd í þessari sóttkví og eins allur ruslpóstur. Í sóttkvínni geta notendur skoðað allan þann póst sem F-PROT AVES þjónustan hefur síað burt eða merkt og ákveðið þá hvort bréf skal sent óbreytt á notandann sé hann þess fullviss að það sé óhætt. Síustillingar F-PROT AVES þjónustunnar eru sveigjanlegar og hafa kerfisstjórar einnig möguleika á að setja mismunandi síunarreglur fyrir hvern og einn notanda.

Hafðu samband

Til að fá nánari upplýsingar um hvað F-PROT AVES þjónustan getur gert fyrir þitt fyrirtæki sendirðu okkur tölvupóst á aves@frisk.is og þjónustufulltrúi mun svara þér um hæl. Frekari upplýsingar á ensku má fá með því að smella hér.