Ný útgáfa af F-PROT Antivirus fyrir Windows

Útgáfa 6.0.6.2 af F-PROT Antivirus fyrir Windows hefur verið gefin út.

Um er að ræða lagfæringar á ýmsum hnökrum og við mælum með því að allir notendur F-PROT Antivirus fyrir Windows á Windows stýrikerfum 2000, 2003 og XP
uppfæri forrit sín í nýjustu útgáfu.

Updating F-PROT Antivirus

Frekari upplýsingar um útgáfur og dagsetningar er hægt að nálgast á yfirlitssíðu okkar yfir nýjustu útgáfur.

Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:

Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:

Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.