Útgáfa 6.0.7.0 af F-PROT Antivirus fyrir Windows hefur verið gefin út.
Þessi útgáfa hefur tilraunastuðning fyrir því að keyra F-PROT Antivirus á Windows Vista. Þessi tilraunaútgáfa á Windows Vista er einungis ætlaður þeim sem
vilja prófa F-PROT Antivirus sem tilraun á Windows Vista en er ekki til venjulegrar notkunnar.
Einnig hefur veiruvarnarvélin verið bætt í þessari útgáfu og þess vegna þá mælum við eindregið með því að notendur eldri útgáfa af F-PROT Antivirus fyrir Windows sem nota Windows stýrikerfi 2000, 2003 og XP, uppfæri
forrit sín sem fyrst í nýjustu útgáfu. Til þess að uppfæra F-PROT Antivirus vinsamlegast heimsækið:
Frekari upplýsingar um hina nýju kynslóð veiruvarnarforrits Friðriks Skúlasonar ehf.,
útgáfu 6 af F-PROT Antivirus fyrir Windows, er að finna á vefsíðu F-PROT Antivirus fyrir Windows.
Leiðbeiningar um hvernig skal uppfæra F-PROT Antivirus í nýjustu útgáfu er að finna á
þjónustusvæðinu fyrir F-PROT Antivirus.
Frekari upplýsingar:
Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.
Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.
Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.
