Vegna minnkandi stuðnings Microsoftar fyrir Windows 98/ME þá kemur Friðrik Skúlason ehf. ekki til með að styðja F-PROT Antivirus útgáfu 3 fyrir
Windows 98/ME nema í örfáa mánuði í viðbót.
Til þess að komast hjá takmörkunum sem við höfum rekist á í Windows 98/ME stýrikerfinu þá höfum við gefið út lagfæringu á útgáfu 3 af
F-PROT Antivirus fyrir Windows 98/ME.
Þetta er lagfæring á alsjálfvirku skráarkerfisvörninni á Windows 98/ME stýrikerfinu og við það breytist útgáfa forritsins úr 3.16f í 3.16g.
Leiðbeiningar:
Sækið skránna af þessari síðu, keyrið svo skránna og fylgið leiðbeiningunum sem birtast. Uppfærslan hættir ef útgáfan af
F-PROT Antivirus er ekki 3.16f eða 3.16f2.
Á meðan að innsetningunni stendur þá biður forritið um viðsiptanúmerið þitt, sem er nauðsynlegt til þess að klára innsetningunni.
Frekari spurningar vísast til Þjónustudeildar Friðriks Skúlasonar ehf.
Sækið lagfæringu:
2007-06-15_upd_vxd3drv_f-prot_hotfix316g.exe
Frekari upplýsingar:
Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.
Um F-PROT Antivirus:
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.
Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.
