Breytt pöntunarferli

Vegna bankaástandsins hefur verið tímabundið lokað fyrir íslensku pöntunarsíðu Friðriks Skúlasonar ehf.

Ein einföld leið til að kaupa eða endurnýja áskrift er að hringja í okkur (540-7400) og gefa þannig upp
kortanúmer. Enginn bankakostnaður er því samfara. Önnur leið er að senda okkur tölvupóst
á sala@frisk.is.

Við vonum sannarlega að þetta ástand vari ekki lengi og biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta gæti valdið.

Hin tímabundna lokun kemur til vegna þess að SEB, sænski bankinn sem sér um netviðskipti okkar með
greiðslukortum, er hættur að taka við greiðslukortafærslum í íslenskum krónum. Athugið þó að enn er
hægt að panta/endurnýja með greiðslukorti ef haft er samband við okkur og greitt með svokallaðri símgreiðslu.

Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:

Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:

Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.