Pöntunarferli komið í lag

Nú er aftur hægt að panta F-PROT Antivirus í gegnum pöntunarsíðu Friðriks Skúlasonar ehf.

Bankakreppan olli því að yfir síðustu þrjá mánuðina þá hefur SEB, sænski bankinn sem sér um netviðskipti okkar með greiðslukortum,
ekki verið tilbúinn til þess að taka við greiðslukortafærslum í íslenskum krónum. Viðskiptavinir hafa samt sem áður getað pantað símleiðis.

Þetta hefur breyst til batnaðar, SEB opnað fyrir viðskipti í íslenskum krónum, og pöntunarsíða okkar er opin fyrir íslensk viðskipti.

Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:

Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna.
Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:

Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu
veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur
en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.