Conficker Ormurinn

Conficker ormurinn hefur vakið mikla athygli um heim allan síðustu daga og vikur.

Viðskiptavinir Friðriks Skúlasonar ehf. þurfa hinsvegar ekki að hafa áhyggjur þar sem að veiruvarnaforritið okkar F-PROT Antivirus (Lykla-Pétur) finnur Conficker orminn.

Notendur F-PROT Antivirus eru öruggir með okkar forrit. Flestir af þeim sem þurfa að hafa áhyggjur eru tölvunotendur sem hafa ekki sett upp veiruvarnaforrit á tölvunum sínum og hafa ekki uppfært Windows
(nánar tiltekið þá er það uppfærslan “Microsoft Security Update MS08-067″ sem skiptir máli).
Við bendum þeim, að sjálfsögðu,
að nota eina íslenska veiruvarnaforritið í heiminum: F-PROT Antivirus.

Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:

Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna.
Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:

Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu
veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur
en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.