Uppfærsluvandamálið er nú úr sögunni

Síðastliðinn föstudag fór fram uppfærsla á Lykla-Pétri fyrir Windows. Því miður fór hún ekki betur
en svo að viðskiptavinir urðu fyrir truflunum í tölvunotkun sinni. Að kvöldi föstudags, um klukkan 20:30,
gáfum við út nýja uppfærslu sem leiðrétti mistökin.

Eftir seinni uppfærsluna höfum við gert mælingar og athuganir til að fylgjast grannt með gangi mála.
Við höfum þannig staðfest að vandamálið er úr sögunni og forritið virðist nú standa sig með mikilli prýði.

Þótt mælingar okkar sýni ekkert óeðlilegt við hegðun Lykla-Péturs á tölvum viðskiptavina okkar, þá hvetjum
við viðskiptavini til að hafa samband við okkur ef eitthvað virðist ekki í lagi.

Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:

Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims og hjá því starfa rúmlega fimmtíu manns víða um heim.

Um F-PROT Antivirus:

Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn var lengi þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en ber nú sama nafn í öllum löndum: F-PROT Antivirus.