Lykla-Pétur fær VB100 gæðastimpilinn frá Virus Bulletin

Vírusvarnatækni Lykla-Péturs fékk VB100 gæðastimpilinn frá hinu virta Virus Bulletin tímariti fyrir desember 2009 og einnig VB100 fyrir febrúar 2010. Þessi niðurstaða Virus Bulletin setur Lykla-Pétur í hóp öflugustu vírusvarna heims. Virus Bulletin er óháður aðili sem prufukeyrir reglulega allar helstu vírusvarnir sem í boði eru.

Frekari upplýsingar um VB100 gæðastimpilinn er að finna á vefsíðu Virus Bulletin.

Lykla-Pétur fyrir Windows (F-PROT Antivirus) er íslenskur hugbúnaður sem byggir á margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu helstu veiruvarnasérfræðinga heims.

Frekari upplýsingar um Lykla-Pétur og Friðrik Skúlason ehf. er að finna á vörusíðu Lykla-Péturs og á vefsíðu Friðriks Skúlasonar ehf..

Einnig er hægt að hafa samband við söludeild Friðriks Skúlasonar á sala@frisk.is eða með því að hringja í 540-7400.

Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims.

Um Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus):
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.