Friðrik Skúlason fær Upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands

Gylfi Magnússon Viðskiptaráðherra afhenti Friðriki Skúlasyni heiðursverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands núna 20. maí. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi verðlaun eru veitt en þau eru veitt fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi.

Frekari upplýsinga um verðlaunin er að finna á síðu Skýrslutæknifélags Íslands.

Lykla-Pétur fyrir Windows (F-PROT Antivirus) er íslenskur hugbúnaður sem byggir á margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu helstu veiruvarnasérfræðinga heims.

Frekari upplýsingar um Lykla-Pétur og Friðrik Skúlason ehf. er að finna á vörusíðu Lykla-Péturs og á vefsíðu Friðriks Skúlasonar ehf..

Einnig er hægt að hafa samband við söludeild Friðriks Skúlasonar á sala@frisk.is eða með því að hringja í 540-7400.

Frekari upplýsingar:

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims.

Um Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus):
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.