Í nýjasta tímariti Virus Bulletin þá fékk Lykla-Pétur VB100 gæðastimpilinn. Þessi viðurkenning staðfestir enn og aftur þá sérhæfðu vitneskju sem Friðrik Skúlason ehf. hefur hvað varðar vírusvarnir og tölvuöryggi. Vírusvarnatækni Friðriks Skúlasonar ehf. hefur margoft í sögu fyrirtækisins hlotið þennan eftirsótta gæðastimpil.
Virus Bulletin er óháður aðili sem prufukeyrir reglulega allar helstu vírusvarnir sem í boði eru.
Frekari upplýsingar um VB100 gæðastimpilinn er að finna á vefsíðu Virus Bulletin.
