Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Windows

Útgáfa 6.0.9.6 af Lykla-Pétri (F-PROT Antivirus) fyrir Windows hefur verið gefin út, bæði í heimilis- og fyrirtækjaútgáfu.

Margverðlaunaða vírusvarnarvélin okkar hefur verið uppfærð og ýmsir hnökrar lagfærðir sem ættu að gera notendur Lykla-Péturs enn öruggari.

Lykla-Pétur mun uppfærast sjálfkrafa.

Frekari upplýsingar um hina nýju kynslóð veiruvarnarforrits Friðriks Skúlasonar ehf., útgáfu 6 af F-PROT Antivirus fyrir Windows, er að finna á vefsíðu F-PROT Antivirus fyrir Windows.

Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims.

Um Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus):
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.

Þessi veiruvörn er þekkt á Íslandi sem „Lykla-Pétur“ en heitir F-PROT Antivirus erlendis.