Í nýrri (nóvember 2011) samanburðarkönnun Virus Bulletin á vírusvörnum fyrir Windows 7 Professional þá fékk Lykla-Pétur vírusvörn (undir erlenda heitinu F-PROT Antivirus) VB100 gæðastimpilinn. Virus Bulletin tímaritið hefur veitt þessi verðlaun í fjöldamörg ár og vírusvarnatækni Friðriks Skúlasonar ehf. hefur margoft í sögu fyrirtækisins hlotið þennan eftirsótta gæðastimpil.
Frekari upplýsingar um VB100 gæðastimpilinn er að finna á vefsíðu Virus Bulletin.
Lykla-Pétur fyrir Windows (F-PROT Antivirus) er íslenskur hugbúnaður sem byggir á margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu helstu veiruvarnasérfræðinga heims.
Frekari upplýsingar um Lykla-Pétur og Friðrik Skúlason ehf. er að finna á vörusíðu Lykla-Péturs og á vefsíðu Friðriks Skúlasonar ehf..
Einnig er hægt að hafa samband við söludeild Friðriks Skúlasonar á sala@frisk.is eða með því að hringja í 540-7400.
Frekari upplýsingar:
Um Friðrik Skúlason ehf.:
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið er í dag eitt af fremstu veiruvarnarfyrirtækjum heims.
Um Lykla-Pétur (F-PROT Antivirus):
Um árabil hefur ein öflugasta veiruvörnin í heiminum verið þróuð og framleidd á Íslandi. Samhentur hópur nokkurra helstu veirusérfræðinga heims vinnur stanslaust að því að þróa veiruvörn sem er mjög öflug en leggur samt mun minna álag á tölvur en mörg af helstu veiruvarnarforritunum á markaðnum í dag.
