Ættfræðiforritið Espólín 2.6
Hætt er sölu á Espólín sem stendur.
Espólín er ættfræðiforrit. Það er sérstaklega ætlað til þess að skrá ættfræðiupplýsingar. Espólín gerir notandanum meðal annars kleift að búa til niðjatöl, rekja framættir manna, rekja saman ættir og teikna ættartré.
Með Espólín fylgir gagnasafn sem hefur að geyma 3868 manns. Þar er að finna flesta kunnustu Íslendinga sem fæddir eru fyrir árið 1750 og ættir þeirra.
Forritið er á DOS formi og gerir litlar kröfur til vél- og hugbúnaðar. Einungis þarf að ganga úr skugga um að íslenskt stafasett sé sett upp fyrir DOS og ef til stendur að prenta beint út úr Espólín þarf tölvan að vera með DOS prentara "driver".
Í viðbót við þetta grunnsafn er einnig hægt að kaupa Espólínsöfn sem innihalda manntölin frá árunum 1703 og 1816.
