Lykla-Pétur fyrir Microsoft Exchange hópvinnukerfið
Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út og hafið sölu á Lykla-Pétri fyrir Exchange.
Exchange hópvinnukerfið frá Microsoft er vinsælasta hópvinnukerfið í heiminum í dag og er í notkun hjá fjölmörgum fyrirtækjum af öllum stærðum.
Nú er hægt að vernda öll gögn sem eiga leið um Exchange hópvinnukerfið fyrir tölvuveirum og annarri óáran með áreiðanlegri veiruvörn Lykla-Péturs.
Lykla-Pétur fyrir Exchange:
- Skannar allan tölvupóst sem fer í gegnum Microsoft Exchange þjóninn, bæði póst sem tekið er á móti og sem sendur er í gegnum hann
- Upfærir veirugagnaskrárnar sjálfvirkt
- Kemur sýktum tölvupósti og viðhengjum fyrir í sóttkví
Hugbúnaðarkröfur
Eftirtaldar uppsetningar eru studdar af Lykla-Pétri fyrir Microsoft Exchange:
- Microsoft Exchange 2000 (SP1) á Windows 2000 Server (SP2)
- Microsoft Exchange 2003 á Windows 2000 Server (SP3)
- Microsoft Exchange 2003 á Windows 2003 Server
- Windows Small Business Server 2000 (Microsoft Exchange 2000)
- Windows Small Business Server 2003 (Microsoft Exchange 2003)
Fyrirspurnum um Lykla-Pétur fyrir Exchange skal beint til söludeildar Friðriks Skúlasonar ehf.
