
Lykla-Pétur fyrir Windows (F-PROT Antivirus) er eitt fremsta veiruvarnaforritið á markaðnum í dag. Það byggir á margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu af mörgum helstu veiruvarnasérfræðingum heims.
Kostir Lykla-Péturs:
Létt og meðfærilegt
Auðvelt í notkun
Einfalt í uppsetningu
Er á íslensku
Má setja á allar tölvur heimilisins
Öll þjónusta við viðskiptavini fer fram á íslensku, bæði í gegnum tölvupóst og síma. Uppfærslur fylgja í ár, bæði á veirugagnaskrám og á forritinu sjálfu. Lykla-Pétur notar minna vinnsluminni en flestar veiruvarnir og hægir sem minnst á almennri vinnslu.
Lykla-Pétur
- Býður upp á:
- Sjálfvirka skanna sem fylgjast með öllum skrám þegar skrár eru opnaðar, vistaðar eða afritaðar.
- Sjálfvirka skráarkerfisvörn sem býður upp á alsjálfvirka vörn fyrir allar skrár á tölvunni.
- Sjálfvirka hreinsun veira, orma og Trójuhesta án þess að skemma lögleg gögn.
- Háþróðaða reglusafnaleit sem verndar tölvuna gegn nýjum og jafnvel óþekktum veirum.
- Alsjálfvirkar uppfærslur á veirugagnaskrám og á forritinu sjálfu.
- Vafrara- og tölvupóstvörn sem býður upp á sjálfvirka rauntíma vörn fyrir allar skrár sem sem tölvan sækir inn á skráarkerfi tölvunnar.
- Vörn gegn hættulegum ActiveX skrám.
- Sóttkví til að eingangra smitaðar og grunsamlegar skrár.
- Háþróaðan skipanalínuskanni fyrir þá lengra komnu.
- Ítarlega upplýsingaskráning í kerfisgögn og leitarskýrslur.
- Útilokanir á skrám, möppum eða skáargerðum fyrir sjálfvirka og handvirka skönnun.
- Og margt fleira...
Heimili
Heimilisútgáfa Lykla-Péturs kostar aðeins 4.900 kr. fyrsta árið og 2.900 kr. endurnýjun fyrir fimm tölvur á heimilinu. Eitt leyfi gildir því fyrir allar tölvur á flestum heimilum.
Sækja 32-bita prufuútgáfu.
Sækja 64-bita prufuútgáfu.
Fyrirtæki
Til viðbótar við heimilisútgáfu Lykla-Péturs þá býður fyrirtækjaútgáfan upp á svokallaðar "LAN" uppfærslur. Með því geta fyrirtæki sett upp net sitt þannig að aðeins ein tölva, internet uppfærslutölvan, sækir uppfærslur af netinu og að Lykla-Pétur á öðrum tölvum á innra neti fyrirtækisins sækja svo uppfærslur sínar þaðan.
Fyrirtækjaútgáfa, netuppfærslur (samsvarar heimilisútgáfu)
Fyrirtækjaútgáfa, "LAN" uppfærslur (aðeins við hæfi til notkunnar á stærri innra netum)
