FRISK Software International

FRISK Software International


Tölvupóstsía komin á lokasprettinn


Reykjavík, 5. júní 2001

Friðrik Skúlason ehf. áætlar að bjóða fyrirtækjum þjónustu sem felur í sér síun tölvupósts. Þessi þjónusta kemur til með að auka öryggi tölvupóstsendinga til muna. Sían verður búin ýmsum eiginleikum sem nýta má til að sérsníða öryggislausnir fyrir allar tegundir tölvupóstkerfa hjá fyrirtækjum og Internet þjónustuaðilum. Með síunni má tryggja að tölvupóstur til notenda innan hvers kerfis sé ávallt veiruleitaður áður en honum er skilað til notandans.

Þjónustan sem um er að ræða er veitt yfir Netið og stefnt er að því að hefja bæði samstarf með helstu internetþjónustuaðilum landsins og bjóða öðrum fyrirtækjum sérsniðnar lausnir á þessu sviði. Til stendur að hefja prófanir bráðlega og stefnt er að því að geta boðið þjónustuna út fyrir lok sumars 2001.

Mikil áhersla er lögð á að leitarvél tölvupóstsíunnar og gagnaskrár séu ávallt uppfærðar eins fljótt og unnt er. Starfsmenn bæði við tölvupóstsíurnar og veirudeildina munu taka upp náið samstarf á þessum vettvangi.

Helstu eiginleikar tölvupóstsíunnar:

  • Fjarlægir eða sótthreinsar viðhengi samkvæmt síunarreglum sem breytt er eftir þörfum hvers viðskiptavinar fyrir sig. Friðrik Skúlason ehf. mun leitast við að leiðbeina viðskiptavinum og hjálpa til við að sérsníða kerfið eftir þörfum hvers og eins. Hægt er að setja niður ákveðnar síunarreglur fyrir hvern notanda innan kerfisins, sem gerir það kleift að sníða kerfið betur að öllum mögulegum starfsumhverfum.

    Dæmi: Einn notandi gæti kosið að stöðva öll viðhengi með endinguna .VBS, hreinsa alla fjölva úr Word og Excel skjölum og veiruleita allar aðrar tegundir skráa. Annar notandi gæti þá kosið að hreinsa ekki fjölva úr Excel skjölum vegna notkunar á fjölvum við vinnu sína.

  • Allur tölvupóstur er veiruleitaður og sendur til notandans en upprunalegi tölvupósturinn situr samt sem áður óbreyttur í sóttkví um nokkurt skeið til vonar og vara.

  • Þar sem þjónustan er veitt beint yfir Internetið þarf viðskiptavinurinn ekki að setja upp neinn nýjan hugbúnað eða vélbúnað til að nota síuna. Notandinn þarf heldur aldrei að hafa áhyggjur af uppfærslum.

  • Uppfærslur á leitarvélinni og veirugagnasöfnum hennar eru framkvæmdar eins fljótt og unnt er. Starfsmenn sem sjá um tölvupóstsíuna eru í næsta herbergi við starfsmenn veirudeildarinnar.

  • Stefnt er að því að veiruleitin valdi sem minnstum töfum á sendingartíma tölvupósts nema veirur finnist.

Áreiðanleiki og öryggisatriði:

  • Hver hreinsivél er sjálfstæð. Vélarnar geta unnið án allra samskipta við miðstýrikerfið.

  • Ef ein hreinsivél bilar, þá tekur önnur sjálfkrafa við. Þetta tryggir notendur bæði gegn vélbúnaðarbilunum og tímabundnum sambandsslitum á Netinu. Leitast verður við að hýsa hreinsivélar á mismunandi netum og mismunandi stöðum.

  • Innan hverrar hreinsivélar er tölvupóstur geymdur óbreyttur og í heilu lagi gegnum allan ferilinn. Þetta tryggir að upprunalegum bréfum sé ávallt hægt að bjarga þó upp komi truflanir á borð við rafmagnsleysi eða hrun stýrikerfis.

  • Eldveggstækni og öflug dulkóðun er notuð til þess að hylja innri samskipti hreinsivéla við stjórnstöðina.

Frekari upplýsingar um tölvupóstsíuna má finna á AVES síðum okkar og í síma 540-7400.