FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 4. apríl 2002

Ný útgáfa af Lykla-Pétri komin út

Útgáfa 3.12 af Lykla-Pétri hefur nú verið gefin út. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á forritinu frá seinustu útgáfu. Helstar eru stóraukinn leitarhraði og nýtt og endurbætt uppfærsluferli veirugagnaskráa. Þá hafa einnig verið gerðar nokkrar smávægilegar breytingar á útliti forritsins og það aðlagað betur notendaviðmóti Windows XP stýrikerfisins.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.

Þá kemur upp síða þar sem beðið er um viðskiptanúmer. Þetta númer var sent í bréfi sem fylgdi seinustu uppfærslu auk þess sem það fylgdi við kaup á Lykla-Pétri.

Eftir innskráningu kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á einhverjum stað á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.