Póstsíunarþjónusta Friðriks Skúlasonar ehf., F-PROT AVES
Á undanförnum árum hefur hættan sem fylgir notkun tölvupósts vaxið. Það gerist æ algengara að vírusar, ormar og trójuhestar berist með tölvupósti og dreifi sér með ótrúlegum hraða um tölvukerfi heimsins. Allir geta átt á hættu að fá varasaman tölvupóst, jafnt Internetveitur sem önnur fyrirtæki, stofnanir á vegum ríkis- eða sveitarfélaga sem og almennir tölvunotendur. Skaði af slíkum tölvupósti getur verið mikill og oft þarf að leggja í kostnaðarsamar hreinsunaraðgerðir.
Einföld og fyrirbyggjandi lausn fyrir íslensk fyrirtæki er F-PROT AVES, tölvupóstsíunarþjónusta sem er rekin af vírus- og öryggissérfræðingum Friðriks Skúlasonar ehf. F-PROT AVES síukerfinu er ekki einungis ætlað að finna og fjarlægja vírusa og orma úr tölvupósti heldur einnig að laga aðrar öryggisholur eins og misnotkun á HTML og koma í veg fyrir árásir á tiltekin póstforrit.
F-PROT AVES síukerfið er byggt upp á hópum síuvéla sem eru á mismunandi stöðum á Netinu. Þannig er tryggt að kerfið stöðvist ekki þó að einhver einn hlekkur í kerfinu brotni.

Uppsetning og notkun F-PROT AVES tölvupóstsíunnar mjög einföld fyrir viðskiptavini. Öllum tölvupósti er einfaldlega beint í gegnum síurnar á póstþjónum sem síðan koma síuðum pósti á leiðarenda. Ekki þarf að breyta neinum stillingum hjá almennum notendum; þeir halda áfram að sækja póstinn sinn á sama póstþjón og áður.
F-PROT AVES býður upp á eftirfarandi þjónustuleiðir:
SecureFirst er grunnþjónusta sem skannar allan póst og hreinsar hann ef hægt er. Ef ekki er hægt að hreinsa tiltekið bréf er því hafnað og bæði sendandi og móttakandi látnir vita.
SecureActive er þjónusta sem gerir kerfisstjórum kleift að stýra nákvæmlega hvernig síun alls pósts sem berst fer fram.
Kerfisstjórar hafa aðgang að vefviðmóti þar sem hægt er að stilla hvernig eigi að sía tölvupóst og hvaða réttindi eru veitt notendum. Þarna er um að ræða almennar stillingar fyrir lénið í heild sem og sérstakar stillingar fyrir einstaka notendur, allt eftir þörfum.
Notendur hafa aðgang að sóttkví í gegnum Vefinn. Þar geta þeir séð hvaða bréfum var breytt, fengið þau endursend (ef þeir hafa tilskilin réttindi) og séð tölfræði um bréf sem fóru í gegnum síurnar.
SecurePlus er síunar- og afritunarþjónusta fyrir fyrirtæki þar sem tölvupóstur gegnir mjög mikilvægu hlutverki. SecurePlus er viðbót við SecureActive; allur tölvupóstur er síaður og afrit geymd utan fyrirtækisins. Þessi þjónusta verndar t.d. gegn skemmdum við innbrot í tölvukerfi fyrirtækisins sem og rafmagns- og netsambandsbilunum.
Ef nánari upplýsinga um þjónustuna er óskað, vinsamlegast hafið samband við aves@frisk.is.
