1. oktober, 2002
F-PROT AVES póstsíunarþjónustan hýst hjá Skýrr hf.
Friðrik Skúlason ehf. og Skýrr hf. hafa gert með sér samning um hýsingu á póstsíukerfinu F-PROT AVES. Samkvæmt samningnum tekur Skýrr hf. netþjóna Friðrik Skúlasonar ehf. í hýsingu í tækjasal sínum.
Friðrik Skúlason ehf. síar tölvuveirur og ruslpóst úr tölvupósti fyrirtækja, bæði hér heima og erlendis. F-PROT AVES hindrar að tölvuveirur og ruslpóstur berist til fyrirtækja með því að fjarlægja eða merkja slíka óáran áður en skeyti er skilað áfram til tölvukerfis viðskiptavina. "Vegna eðlis þessarar þjónustu lagði Friðrik Skúlason ehf. mikla áherslu á stöðugt netsamband, öryggi tölvubúnaðar og bilanavakt allan sólarhringinn þegar kom að vali á hýsingaraðila fyrir F-PROT AVES póstsíukerfið. Þess vegna varð hýsingarþjónusta Skýrr hf. fyrir valinu", segir Friðrik Skúlason.
Með þrefaldri tengingu sinni við Netið getur Skýrr hf. tryggt Friðriki Skúlasyni ehf. öruggt netsamband með lágmarks niðritíma. Tækjasalur Skýrr hf. er með öruggari vélasölum landsins en hann er byggður upp samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum, meðal annars frá Verisign, einu þekktast fyrirtæki á sviði tölvuöryggis. Þá tryggir Skýrr hf. einnig öryggi þjónustunnar með aðgengi að þjónustuborði allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Samningurinn tekur gildi þann 1. október og verður tíminn þangað til notaður til undirbúnings á flutningi miðlara inn til Skýrr hf.
Um Skýrr hf.
Skýrr hf. var stofnað 1952 og hefur verið í fararbroddi upplýsingatæknifyrirtækja síðan þá. Skýrr hf. hefur sinnt þjónustu við hið opinbera og einkafyrirtæki allt frá stofnun og hefur mesta reynslu íslenskra fyrirtækja í rekstri stórra og viðamikilla tölvukerfa í miðlægri högun ásamt því að bjóða upp á breiða línu þjónustuúrvals eins og Tölvurekstrarþjónustu, Internetþjónustu, hýsingarþjónustu, Kerfisleigu o.fl.
Um Friðrik Skúlason ehf.
Friðrik Skúlason ehf. hóf starfsemi árið 1989 og er í dag leiðandi á sviði þróunar og framleiðslu veiruvarnarhugbúnaðar í heiminum í dag. Fyrirtækið býður upp á heildarlausnir hvort sem í baráttu gegn tölvuveirum eða ruslpósti sem í dag eru notaðar af fyrirtækjum um allan heim. Friðrik Skúlason ehf. er einn stærsti útflutningsaðili hugbúnaðar á Íslandi í dag, þar sem yfir 95% viðskiptavina fyrirtækisins eru erlendir.
