Reykjavík, 14. október 2002
Ný útgáfa af Lykla-Pétri hefur verið gefin út
Nú hefur útgáfa 3.12b af Lykla-Pétri verið gefin út. Smávægilegar breytingar hafa verið gerðar á forritinu frá útgáfu 3.12a. Helst er um að ræða aukinn leitarhraða Lykla-Péturs.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Þá kemur upp síða þar sem beðið er um viðskiptanúmer. Þetta númer var sent í bréfi sem fylgdi seinustu uppfærslu auk þess sem það fylgdi við kaup á Lykla-Pétri.
Eftir innskráningu kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á einhverjum stað á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
