Fréttatilkynning frá Íslandssíma hf. og Friðriki Skúlasyni ehf.
Samið um fjarskiptaþjónustu og endursölu
|
- Friðrik Skúlason ehf. flytur alla símaþjónustu til Íslandssíma hf. sem býður viðskiptavinum sínum vírusvarnarþjónustu Friðriks Skúlasonar - Friðrik Skúlason ehf. hefur flutt tal- og farsímaþjónustu sína til Íslandssíma. Fyrirtækið verður fasttengt símkerfi Íslandssíma og nýtur gjaldfrjálsra hringinga innan fyrirtækisins á kerfi Íslandssíma – hvort sem er úr borðsíma í farsíma eða innan þessara tveggja kerfa. Þá mun Friðrik Skúlason innan skamms njóta öruggara varasambands fyrir tölvuþjónustu sína þegar Íslandssími kemur upp sítengdu varasambandi um gervitungl fyrir öll fjarskipti viðskiptavina fyrirtækisins. |
||
|
Þá hafa Íslandssími og Friðrik Skúlason gert samkomulag um sölu og þróun á vörum Friðriks Skúlasonar ehf. Íslandssími veitir yfir 10.000 viðskiptavinum sínum vírusvarnarþjónustu. Þeim gefst nú einnig kostur á SecureActive og SecurePlus vírusvarnarþjónustum Friðriks Skúlasonar. Þessar vírusvarnarþjónustur bjóða m.a. upp á að öll sýkt viðhengi og ruslpóstur séu vistuð í sóttkví sem viðskiptavinir hafa vefaðgang að. Einnig er boðið upp á að sýktur póstur sé síaður og vistaður utan fyrirtækis. Íslandssími hefur um nokkurt skeið boðið viðskiptavinum sínum upp á vírusvarnarþjónustu. Samkomulagið við Friðrik Skúlason gerir Íslandssíma kleift að auka þjónustuna og öryggi hennar. Yfir 40.000 viðhengi sem berast á meira en 10.000 póstföng eru síuð í vírusvarnarþjónustu Íslandssíma daglega. 2 til 5% viðhengjanna reynast veirusmituð og hækkar hlutfallið verulega þegar nýir og áður óþekktir vírusar komast í umferð. Þróunarsamstarfið gengur út á að Friðrik Skúlason ehf. þróar vírusvarnir fyrir internetkerfi Íslandssíma sem keyra á IBM AIX stýrikerfinu. Íslandsími lætur Friðriki Skúlasyni í té vélbúnað og mun annast rekstur vélarinnar. Stefnt er að því að fyrsta útgáfa þessarar lausnar verði tilbúin innan þriggja mánaða frá undirritun samkomulagsins. Friðrik Skúlason ehf. er leiðandi á sviði þróunar og framleiðslu á veiruvarnarhugbúnaði í heiminum í dag og selur megnið af framleiðslu sinni á erlendum markaði. Fyrirtækið hefur boðið Íslendingum upp á öfluga vörn gegn tölvuveirum allar götur síðan 1989, auk annars hugbúnaðar. Nánari upplýsingar veitir Pétur Pétursson, upplýsinga- og kynningarstjóri Íslandssíma, í síma 820 5059 og Sigfús Ingi Sigfússon , sölu- og markaðsstjóri hjá Friðriki Skúlasyni, í síma 824 7410. | ||
|
||

