FRISK Software International

FRISK Software International


Friendgreetings tölvupóstkortið

Nú í lok Október fóru viðskiptavinir Friðriks Skúlasonar ehf. að hafa samband við okkur vegna torkennilegs tölvupósts sem þeir fengu í pósthólf sín og virtist sendast sjálfkrafa áfram á alla í póstfangaskránni.

Skeyti þessi eru á ensku og líta svona út:


 From: "nafn sendanda"
 To: "nafn móttakanda"
 Subject: "nafn móttakanda" you have an E-Card from "nafn sendanda".


 Greetings!


 "nafn sendanda" has sent you an E-Card -- a virtual postcard from FriendGreetings.com.
 You can pickup your E-Card at the FriendGreetings.com by clicking on the link below.


 h t t p://www.friendgreetings.com/pickup/pickup.aspx?code="nafn móttakanda"&id="númer"


 Message:
 ------------------------------------------------------------
 "nafn móttakanda",
 I sent you a greeting card. Please pick it up.
 "nafn sendanda"
 ------------------------------------------------------------

Þegar móttakandi smellir á hlekkinn í tölvupóstinum, er hlaðinn niður hugbúnaður á tölvuna sem setur upp heillaóskaskeytið. Á meðan uppsetningu stendur er notandinn beðinn að samþykkja eða hafna notendaskilmálum. Þessir notendaskilmálar fela meðal annars í sér að móttakandinn samþykki að samskonar skeyti sé sent á alla í tölvupóstfangaskrá hans.

Ef móttakandinn samþykkir þessa skilmála heldur uppsetningin áfram og samskonar skeyti er sent á alla í tölvupóstfangaskrá hans, en þó einvörðungu ef viðkomandi notar Outlook póstforritið frá Microsoft.

Þetta heillaóskaskeyti getur ekki flokkast sem vírus eða tölvuormur. Þetta er ný tegund af ruslpósti sem nýtir sér sömu aðferðir til dreifingar og tölvuormar, en leitar samþykkis notandans fyrst. Þó þessi tegund ruslpósts hafi engar hættulegar aukaverkanir í för með sér getur hann hægt töluvert á nettengingu þess sem fyrir því verður þegar skeyti eins og þetta að ofan er sent á alla í tölvupóstfangaskránni. Við viljum því hvetja notendur til þess að hunsa skeyti sem þetta.

Til þess að losna við hugbúnaðinn sem settur er inn á tölvuna þegar kort þetta er sett inn, er farið í 'Control Panel' og 'Add/Remove Programs' valið líkt og til að taka annan hugbúnað af tölvunni. Þegar þangað er komið skal velja forritin 'Friend Greetings' og 'WinSrv' og fjarlægja þau.