FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 20. nóvember 2003

Útgáfur 4.3.1 af Lykla-Pétri fyrir Solaris SPARC og Lykla-Pétri fyrir Solaris x86 hafa verið gefnar út

Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út útgáfu 4.3.1 af Lykla-Pétri fyrir Solaris SPARC en einnig útgáfu 4.3.1 af Lykla-Pétri fyrir Solaris x86.

Þessar nýjustu útgáfur Lykla-Péturs fyrir Solaris stýrikerfi hafa að geyma nokkrar minniháttar breytingar sem þó gera það að verkum að Lykla-Pétur fyrir Solaris SPARC og Lykla-Pétur fyrir Solaris x86 veita nú notendum sínum enn meira öryggi gegn þeim hættum sem stafar að þeim og þeirra upplýsingum.

Við hvetjum notendur Lykla-Péturs fyrir Solaris SPARC og Lykla-Péturs fyrir Solaris x86 til að uppfæra forrit sín við fyrsta tækifæri.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.

Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.