FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 23. júní 2003

Ný útgáfa af Lykla-Pétri hefur verið gefin út

Útgáfa 3.14 af Lykla-Pétur fyrir Windows hefur verið gefin út. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á Lykla-Pétri frá eldri útgáfum. Einkum er um að ræða bætta eiginleika Lykla-Péturs til að ráða niðurlögum áður óþekktra veira. Vegna þessara breytinga er mikilvægt að notendur Lykla-Péturs uppfæri forrit sín upp í útgáfu 3.14

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.

Þá kemur upp síða þar sem beðið er um viðskiptanúmer. Þetta númer var sent í bréfi sem fylgdi seinustu uppfærslu auk þess sem það fylgdi við kaup á Lykla-Pétri.

Eftir innskráningu kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á einhverjum stað á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.