Reykjavík, 20. ágúst 2003
Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri
Útgáfa 4.2.0 af Lykla-Pétri fyrir Linux hefur verið gefin út. Einnig hefur verið gefin út ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir AIX (4.3.0). Einkum er um að ræða bætta meðhöndlun Lykla-Péturs á skimun tölvupósts en einnig hafa eiginleikar forritsins til að ráða niðurlögum áður óþekktra veira verið bættir.
Vegna þessara breytinga er mjög mikilvægt að Linux og AIX notendur Lykla-Péturs uppfæri forrit sín.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Þá kemur upp síða þar sem beðið er um viðskiptanúmer. Þetta númer var sent í bréfi sem fylgdi seinustu uppfærslu auk þess sem það fylgdi við kaup á Lykla-Pétri.
Eftir innskráningu kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á einhverjum stað á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
