FRISK Software International

FRISK Software International


Fréttatilkynning frá Þekkingu hf. og Friðriki Skúlasyni ehf.

Reykjavík, 27. ágúst 2003

Þekking hf. og Friðrik Skúlason ehf. í samstarf

Friðrik Skúlason ehf. og Þekking hf. hafa gert með sér samning um endursölu á F-PROT AVES póstsíunarþjónustu Friðriks Skúlasonar ehf. til viðskiptavina Þekkingar hf.

Um er að ræða SecureActive þjónustuleiðina sem er sveigjanleg áskriftarleið innan F-PROT AVES póstsíunarkerfisins. Í SecureActive þjónustunni er allur tölvupóstur yfirfarinn og sýkt viðhengi hreinsuð áður en þau berast til viðtakanda, ásamt því að allur ruslpóstur er annað hvort merktur svo viðtakandi geti síað hann í sérstakt pósthólf eða honum er hafnað. Þau viðhengi sem ekki er hægt að hreinsa eru geymd í sóttkví svo og allur ruslpóstur.

Þekking hf. leggur áherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum bestu lausnir sem til eru til að tryggja þeim öruggan rekstur tölvukerfa og er þessi samningur liður í þeirri stefnu. Auk þess að vírushreinsa allan tölvupóst er öflug ruslpóstsíun í F-PROT AVES sem ver notendur fyrir óæskilegum ruslpósti (SPAM) og eykur þannig afköst og framleiðni starfsmanna.

F-PROT AVES þjónustan er sjálfkrafa uppfærð af veirusérfræðingum Friðriks Skúlasonar ehf. jafnóðum og nýjar ógnir steðja að tölvunotendum og því er viðbragðstími uppfærslna á F-PROT AVES þjónustunni alla jafna mun skemmri en hjá almennum notendum veiruvarna. Kostir þessa komu bersýnilega í ljós í síðustu viku þegar W32/Sobig.F@mm ormurinn byrjaði að dreifa sér með miklum hraða. Notendur F-PROT AVES þjónustunnar voru aldrei í neinni hættu þar sem þjónustan hafði verið uppfærð innan við 20 mínútum eftir að veirusérfræðingar Friðriks Skúlasonar ehf. fengu fyrsta sýnieintakið af orminum. Þess má geta að fyrsta eintak ormsins barst ekki til almennra notenda hér á landi fyrr en 47 mínútum eftir að F-PROT AVES þjónustan hafði verið uppfærð. Notendur hennar voru því vel tryggðir og áttu aldrei í hættu að smitast.

Um Þekkingu hf.

Þekking hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem býður fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu, Internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margs konar sérlausnum, ráðgjöf og kennslu. Hjá Þekkingu starfa á fjórða tug starfsmanna á tveimur starfsstöðum á landinu, í Kópavogi og á Akureyri. Meðal viðskiptavina eru fjölmörg stór og smá fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. www.thekking.is

Um Friðrik Skúlason ehf.

Friðrik Skúlason ehf. er leiðandi á sviði þróunar og framleiðslu á veiruvarnarhugbúnaði í heiminum í dag. Fyrirtækið er afar öflugt á erlendum markaði þar sem vörur fyrirtækisins eru seldar undir nafninu F-PROT Antivirus. Að auki hefur Friðrik Skúlason ehf. boðið Íslendingum upp á íslenska vörn gegn tölvuveirum, undir nafninu Lykla-Pétur, allar götur síðan 1989. Friðrik Skúlason framleiðir einnig hina velþekktu ritvilluvörn Púka sem og ættfræðiforritið Espólín. Hjá Friðriki Skúlasyni ehf. starfa nú vel á fimmta tug starfsmanna. www.frisk.is

Þorsteinn Guðbrandsson, verkefnastjóri hjá Þekkingu hf. og Friðrik Skúlason undirrita samning um endursölu á F-PROT AVES póstsíunarþjónustu Friðriks Skúlasonar ehf.