Reykjavík, 8. október 2003
Útgáfa 4.2.0 af Lykla-Pétri fyrir BSD veitir notendum enn meira öryggi
Útgáfa 4.2.0 af Lykla-Pétri fyrir BSD hefur verið gefin út. Með þessari nýju og endurbættu útgáfu er notendum veitt enn meira öryggi í tölvupóstssamskiptum. Útgáfa 4.2.0 af Lykla-Pétri fyrir BSD inniheldur viðbót (e. plugins) fyrir skilvirkari skimun tölvupósts í Postfix og Qmail póstforritunum. Einnig hafa ýmsar breytingar verið gerðar sem gera það að verkum að forritið eflist til muna og öryggi notandans er bætt enn frekar.
Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir BSD með Postfix eða Qmail póstforritunum hvattir til að íhuga notkun þeirra viðbóta (e. plugins) sem fylgja útgáfu 4.2.0.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
