Reykjavík, 21. október 2003
Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Linux hefur verið gefin út
Útgáfa 4.3.1 af Lykla-Pétri fyrir Linux hefur verið gefin út. Þessi nýjasta útgáfa Lykla-Péturs fyrir Linux veitir skilvirkari skimun tölvupósts og eflir þar með öryggi notenda enn frekar. Auk þess veitir útgáfa 4.3.1 af Lykla-Pétri fyrir Linux háþróaðar varnir gegn óþekktum hættum sem kunna að steðja að upplýsingum og starfsumhverfi Linux notenda í framtíðinni.
Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Linux hvattir til að uppfæra forrit í útgáfu 4.3.1 sem allra fyrst.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
