FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 22. október 2003

Lykla-Pétur fyrir Solaris SPARC er kominn út

Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út Lykla-Pétur fyrir Solaris SPARC styrikerfið. Lykla-Pétur fyrir Solaris SPARC er mikilvæg viðbót við það úrval hágæða vara sem Friðrik Skúlason býður viðskiptavinum sínum.

Solaris SPARC stýrikerfið hefur verið þróað af SUN Microsystems og er alveg sérstaklega stöðugt stýrikerfi sem er hannað til notkunar á kerfum byggðum á UltraSPARC örgjörvum. Með þessari útgáfu býður Friðrik Skúlason ehf. notendum eins kraftmesta stýrikerfis heims upp á hina þaulreyndu og áreiðanlegu vernd Lykla-Péturs.

Lykla-Pétur fyrir Solaris SPARC er nú í útgáfu 4.3.0. Þessi útgáfa inniheldur einnig viðbætur (plugins) til skimunar á tölvupósti með póstforritunum Sendmail, Postfix og Qmail. Þessar viðbætur gera það að verkum að öryggi notandans verður mjög mikið og hættan á sýkingu með tölvupósti verður mun minni en ella.