FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 30. október 2003

Friðrik Skúlason ehf hefur nú gefið út Lykla-Pétur fyrir Solaris x86

Í framhaldi af útgáfu Lykla-Péturs fyrir Solaris SPARC stýrikerfi fyrr í þessum mánuði hefur Friðrik Skúlason ehf. nú gefið út Lykla-Pétur fyrir Solaris x86. Með þessari útgáfu hefur enn einu mikilvægu stýrikerfi verið bætt á lista þeirra sem býðst vernd Lykla-Péturs. Nú geta notendur Solaris x86 einnig notið þess áreiðanleika og öryggis sem Lykla-Pétur hefur veitt öllum sínum notendum í gegnum tíðina.

Solaris x86 stýrikerfið frá Sun Microsystems hefur verið hannað til notkunar með 32-bita Intel og AMD örgjörvum. Þetta er öruggt og áreiðanlegt stýrikerfi sem hentar vel þeim sem vilja njóta afls Solaris stýrikerfisins en keyra það á Intel eða AMD örgjörvum. Með Lykla-Pétri fyrir Solaris x86 geta notendur verið öryggir um að þeir séu að njóta einnar þeirrar bestu fáanlegu verndar gegn þeirri bráðu hættu sem stafar af veirusýkingum þessa dagana.

Lykla-Pétur fyrir Solaris x86 er nú í útgáfu 4.3.0. Þessi útgáfa inniheldur viðbætur (plugins) til skimunar á tölvupósti með póstforritunum Sendmail, Postfix og Qmail. Þessar viðbætur veita notendum afar mikla og áreiðanlega vörn gegn sýkingum sem berast með tölvupósti.