FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 5. nóvember 2003

Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir AIX hefur verið gefin út

Útgáfa 4.3.1 af Lykla-Pétri fyrir AIX hefur verið gefin út. Þessi nýjasta útgáfa Lykla-Péturs fyrir AIX veitir skilvirkari skimun tölvupósts og eflir þar með öryggi notenda enn frekar. Auk þess veitir útgáfa 4.3.1 af Lykla-Pétri fyrir AIX háþróaðar varnir gegn óþekktum hættum sem kunna að steðja að upplýsingum og starfsumhverfi AIX notenda í framtíðinni.

Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir AIX hvattir til að uppfæra forrit sín við fyrsta tækifæri.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.

Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.