FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 12. nóvember 2003

Mikilvæg tímamót í sögu Lykla-Péturs

Friðrik Skúlason ehf. hefur allt frá upphafi verið í fararbroddi helstu hugbúnaðarfyrirtækja heims í baráttunni gegn veirum, ormum og öðrum skaðlegum forritum. Starfmenn fyrirtækisins hafa í gegnum tíðina unnið hörðum höndum að því að gera Lykla-Pétur að því gríðarlega öfluga veiruvarnarforriti sem það er í dag. Nú hefur þeim merka áfanga verið náð að Lykla-Pétur greinir meira en 100.000 mismunandi veirur, orma og önnur skaðleg forrit.

"Ég man nú þegar við vorum fyrst að byrja þá sat ég einhvern tímann og var að skoða lista yfir þær hundrað veirur sem þá voru til og var að velta því fyrir mér hvort þær yrðu nokkurn tímann þúsund!" Segir Friðrik Skúlason stofnandi fyrirtækisins.

Margt hefur þó breyst á undanförnum árum og fjöldi skaðlegra forrita hefur aukist mjög hratt. Síðastliðnir mánuðir hafa gert öllum tölvunotendum ljóst hversu hættulegar og skaðlegar nútíma hugbúnaðarárásir geta orðið.

Msblast ormurinn sem náði hámarksútbreiðslu síðla sumars sem og Sobig.F faraldurinn sem olli mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins jafnt sem almennum tölvunotendum ómældum vandræðum síðastliðið haust sýna það glöggt að nú er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að verjast þessum hættum. Lykla-Pétur er eitt það öflugasta veiruvarnarforrit sem völ er á og er viðurkennt sem slíkt um allan heim.

Í gegnum árin hafa veirusérfræðingar fyrirtækisins greint allar mögulegar veirur og önnur skaðleg forrit sem skotið hafa upp kollinum. Þessi gríðarlega mikla vinna hefur gert það að verkum að fyrirtækið býr nú yfir einum stærsta gagnabanka heims um vírusa og skaðlegan hugbúnað. Með þessum gagnabanka hefur tekist sífellt að efla Lykla-Pétur og úr hefur orðið veiruvarnarforrit sem býður viðskiptavinum sínum óviðjafnanlegt öryggi og áreiðanleika.

"Við höfum alltaf lagt okkur öll fram við að veita viðskiptavinum okkar veiruvarnarforrit af hæsta gæðastaðli og þessi áfangi sýnir það að sú mikla vinna sem við höfum lagt í Lykla-Pétur í gegnum árin hefur borgað sig."

Um leið og við hjá Friðriki Skúlasyni ehf. fögnum þessum áfanga lítum við fram á veginn í átt að enn frekari eflingu og þróun Lykla-Péturs.