FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 26. nóvember 2003

Útgáfur 4.3.2 af Lykla-Pétri fyrir Solaris SPARC og 4.3.2 af Lykla-Pétri fyrir Solaris x86 hafa verið gefnar út

Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út útgáfu 4.3.2 af Lykla-Pétri fyrir Solaris SPARC en einnig útgáfu 4.3.2 af Lykla-Pétri fyrir Solaris x86.

Þessar nýjustu útgáfur Lykla-Péturs fyrir Solaris SPARC og Solaris x86 stýrikerfi hafa að geyma nokkrar minniháttar breytingar og veita nú notendum sínum enn meira öryggi gegn þeim hættum sem stafa að þeim og þeirra upplýsingum.

Við hvetjum notendur Lykla-Péturs fyrir Solaris SPARC og Lykla-Péturs fyrir Solaris x86 til að uppfæra forrit sín við fyrsta tækifæri.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.

Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.