Reykjavík, 28. nóvember 2003
Útgáfa af 4.3.1 Lykla-Pétri fyrir BSD hefur verið gefin út
Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út útgáfu 4.3.1 af Lykla-Pétri fyrir BSD.
Þessi nýjasta útgáfa Lykla-Péturs fyrir BSD stýrikerfi hefur að geyma nokkrar minniháttar breytingar sem þó gera það að verkum að Lykla-Pétur fyrir BSD veitir nú notendum sínum enn meira öryggi gegn þeim hættum sem stafa að þeim og þeirra upplýsingum. Þar að auki hefur Lykla-Pétur fyrir BSD verið uppfærður til að styðja OpenBSD 3.4 jafnt sem fyrri útgáfur.
Við hvetjum notendur Lykla-Péturs fyrir BSD til að uppfæra forrit sín við fyrsta tækifæri.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
