FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 12. desember 2003

Púki 2003

Einkavæðing, flamberaður, GSM, SMS, ADSL, netverji, neyslufyllerí, krumpusvæði, pöbbarölt, sálfræðitryllir, strippari, veraldarvefur, þensluhvetjandi.

Friðrik Skúlason ehf. hefur gefið út nýja útgáfu af ritvilluvörninni Púka. Forritið hefur allt frá fyrstu útgáfu þróast með íslenskri tungu hvað varðar nýyrði og málnotkun. Púki 2003, nýjasta útgáfa forritsins, hefur að geyma orðasafn sem tekur mið af breyttri málnotkun og -venjum síðustu ára. Púki 2003 ræður t.d. við öll orðin hér í upphafi en þau gefa einmitt góða mynd af tíðarandanum og þeim breytingum sem hafa orðið í íslensku samfélagi á undanförnum árum.

Púki 2003 hefur yfir að ráða mun stærra og yfirgripsmeira orðasafni en áður. Forritið hefur verið samhæft Microsoft Office 2003 en styður áfram Office XP og Office 2000. Púki 2003 aðstoðar því notendur í barráttunni við ritvillurnar með fljótlegum yfirlestri og leiðréttingum á texta sem unninn er í Microsoft Office.

Púka 2003 fylgir einnig einfalt og aðgengilegt beygingarforrit. Forritið gefur upp allar beygingarmyndir nafnorða, sagnorða og lýsingarorða sem eru í orðasafni Púkans. Beygingarforritið er afar gagnlegt hjálpartæki með yfirlestri Púkans þar sem notandinn getur auðveldlega flett upp beygingarmyndum eftir þörfum.

Púki 2003 inniheldur einnig samheitaorðasafn, sem kemur að góðum notum þegar nákvæmlega rétta orðið vantar, og orðskiptiforrit sem skiptir orðum rétt á milli lína.


Orðasafn Púka 2003

Fyrsta útgáfa Púka kom út árið 1987. Orðasafn hans var síðan endurbætt árið 1993 og aftur nú 2003.

Grunnurinn að orðasafninu eru stofnmyndir íslenskra orða. Út frá þeim myndar Púki öll þau orð sem hann þekkir. Fjöldi stofnmynda í orðasafninu hefur nú verið næstum tvöfaldaður frá síðustu útgáfu, úr um 15.000 í um 29.000. Þessi mikla stækkun orðasafnsins stórbætir meðal annars tillögugerð Púkans. Þegar Púkinn finnur rangt stafsett orð er hann líklegri til að koma með rétta tillögu að orði.

Endurbætur á orðasafninu voru unnar með hjálp textabanka sem byggir á orðasafni Morgunblaðsins frá byrjun árs 2000 til seinnihluta árs 2003. Textabankinn innheldur um 4 milljónir setninga eða um 450 MB. Stofnmyndum þeirra orða úr textabankanum sem Púki þekkti ekki var bætt við gamla orðasafnið.

Morgunblaðið notar nú Púka til yfirlestrar á vefsíðu sinni www.mbl.is og kemur þannig í veg fyrir bæði rit- og innsláttarvillur, lesendum til góða.

Endurbæturnar á orðasafni Púkans voru styrktar af Tungutæknisjóði Menntamálaráðuneytisins (www.tungutaekni.is).

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 540 7400 og á heimasíðu Púka 2003: vefur.puki.is.