Reykjavík, 19. desember 2003
Útgáfa 4.3.2 af Lykla-Pétri fyrir AIX hefur verið gefin út.
Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út útgáfu 4.3.2 af Lykla-Pétri fyrir AIX.
Þessi nýjasta útgáfa Lykla-Péturs fyrir AIX stýrikerfi hefur að geyma nokkrar minniháttar breytingar og veitir nú notendum sínum enn meira öryggi gegn þeim hættum sem stafa að þeim og þeirra upplýsingum.
Við hvetjum notendur Lykla-Péturs fyrir AIX til að uppfæra forrit sín við fyrsta tækifæri.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
