Reykjavík, 19. desember 2003
Útgáfa 1.1.0 af Lykla-Pétri fyrir Exchange hefur verið gefin út.
Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út útgáfu 1.1.0 af Lykla-Pétri fyrir Exchange.
Nýjasta útgáfa Lykla-Péturs fyrir Exchange er mikið endurbætt og gerir fleiri notendum Exchange á Windows vefþjónum kleift að njóta þeirrar verndar og þess öryggis sem Lykla-Pétur veitir gegn tölvuveirum og öðrum hættum sem að upplýsingum þeirra stafa. Lykla-Pétur fyrir Exchange, sem áður studdi Exchange 2000 á Windows 2000 vefþjónum, styður nú allar eftirfarandi samsetningar:
- Exchange 2000 á Windows 2000 vefþjónum
- Exchange 2003 á Windows 2000 vefþjónum
- Exchange 2003 á Windows 2003 vefþjónum
Vegna þessara endurbóta geta notendur Exchange verið þess full vissir að þeir munu áfram njóta þess öryggis sem Lykla-Pétur býður upp á, þó svo að uppfært sé í einhverja af ofantöldum samsetningum. Þar að auki geta notendur Exchange 2003 á Windows 2000 eða Windows 2003 vefþjónum, sem ekki hafa haft færi á að nýta sér þjónustu Lykla-Péturs hingað til, nú tryggt öryggi gagna sinna gegn þeim tölvuveirum og ormum sem nú herja á tölvunotendur í æ auknum mæli.
Notendur Lykla-Péturs fyrir Exchange geta uppfært forrit sín með því að fylgja leiðbeiningunum hér að neðan.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
