Reykjavík, 22. desember 2003
Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Linux hefur verið gefin út
Útgáfa 4.3.2 af Lykla-Pétri fyrir Linux hefur verið gefin út. Þessi nýjasta útgáfa Lykla-Péturs fyrir Linux gerir kerfisstjórum mun auðveldara að setja kerfið upp, t.d. eftir að vél hefur verið endurræst. Þetta gerir það að verkum að uppsetning verður mun nákvæmari jafnt sem auðveldari.
Þar að auki hafa nokkrar smávægilegar umbætur verið gerðar og veitir Lykla-Pétur fyrir Linux því notendum sínum enn betri vörn gegn þeirri síaukinni hættu sem stafar af tölvuveirum og ormum.
Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Linux hvattir til að uppfæra forrit sín í útgáfu 4.3.2 sem allra fyrst.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt hlaða niður og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skránni hefur verið hlaðið niður skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
