Reykjavík, 5. febrúar 2004
Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Linux hefur verið gefin út
Útgáfa 4.3.4 af Lykla-Pétri fyrir Linux hefur verið gefin út. Í þessari nýjustu útgáfu Lykla-Péturs fyrir Linux hefur meðferð gagnasafna (e. archives) verið endurbætt og veitir þessi útgáfa því notendum enn betri vörn gegn þeirri síaukinni hættu sem stafar af veirum og ormum.
Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Linux hvattir til að uppfæra forrit sín í útgáfu 4.3.4 sem allra fyrst.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
