Reykjavík, 26. Febrúar 2004
Útgáfa 3.14c af Lykla-Pétri fyrir Windows veitir enn meira öryggi
Útgáfa 3.14c af Lykla-Pétri fyrir Windows hefur nú verið gefin út. Í þessari nýjustu útgáfu Lykla-Péturs fyrir Windows hefur meðferð gagnasafna (e. archives) verið endurbætt og veitir forritið nú notendum enn betri vörn gegn þeirri síaukinni hættu sem stafar af veirum og ormum.
Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Windows hvattir til að uppfæra forrit sitt við fyrsta tækifæri.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri. Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
