FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 12. mars 2003

Útgáfa 1.1.2 af Lykla-Pétri fyrir Exchange hefur verið gefin út.

Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út útgáfu 1.1.2 af Lykla-Pétri fyrir Exchange.

Nýjasta útgáfa Lykla-Péturs fyrir Exchange býður notendum upp á betri skönnun á skrám sem berast sem viðhengi í læstum ZIP gagnasöfnum. Þessi útgáfa getur því betur greint að þær skrár sem af kynni að stafa hætta og því varað notendur við áður en slík viðhengi eru opnuð.

Við hvetjum notendur Lykla-Péturs fyrir Exchange til að uppfæra forrit sín sem fyrst til að sporna við enn frekari dreifingu skaðlegra veira og orma. Notendur Lykla-Péturs fyrir Exchange geta uppfært forrit sín með því að fylgja leiðbeiningunum hér að neðan.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.

Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.