FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 18. Mars 2004

Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir öll stýrikerfi

Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir öll stýrikerfi.

Í þessum nýjustu útgáfum Lykla-Péturs hefur skönnun á forritaskrám sem dulkóðaðar eru inni í þjöppuðum safnskrám (ZIP) verið endurbætt. Þessar breytingar gera það að verkum að Lykla-Pétur veitir notendum betri vörn gegn vírusum, ormum og öðrum hættum sem berast í þess konar skrám sem viðhengi við tölvupóst. Einnig hefur öryggisþröskuldur Lykla-Péturs við uppsetningu verið hækkaður með breytingum sem gerðar hafa verið á fyrirfram ákveðnum stillingum forritsins við uppsetningu.

Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs hvattir til að uppfæra forrit sín við fyrsta tækifæri.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri. Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.