FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 23. júlí 2004

Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir öll UNIX stýrikerfi

Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir öll UNIX stýrikerfi hafa verið gefnar út. Í þessum nýjustu útgáfum Lykla-Péturs fyrir Linux, BSD, AIX, Solaris SPARC og Solaris x86 hefur meðferð gagnasafna (e. archives) verið endurbætt og veita þessar útgáfur því notendum enn betri vörn gegn þeirri síaukinni hættu sem stafar af veirum og ormum.

Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Linux, BSD, AIX, Solaris SPARC og Solaris x86 hvattir til að uppfæra forrit sín við fyrsta tækifæri.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.

Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.