FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 3. september 2004

Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Exchange

Friðrik Skúlason ehf. hefur nú gefið út útgáfu 1.1.4 af Lykla-Pétri fyrir Exchange.

Við undirbúning þessarar útgáfu hafa nokkrar minniháttar breytingar verið gerðar á forritinu sem þó gera það að verkum að notendur Lykla-Péturs fyrir Exchange njóta betri varnar en áður hefur boðist gegn þeirri síaukinni hættu þeim sem stafar af veirum og ormum

Við hvetjum notendur Lykla-Péturs fyrir Exchange til að uppfæra forrit sín sem fyrst til að sporna við enn frekari dreifingu skaðlegra veira og orma. Notendur Lykla-Péturs fyrir Exchange geta uppfært forrit sín með því að fylgja leiðbeiningunum hér að neðan.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.

Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.