FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 21. september 2004

Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir öll UNIX stýrikerfi

Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir öll UNIX stýrikerfi hafa verið gefnar út. Lykla-Pétur fyrir Linux x86, BSD x86, Solaris SPARC, Solaris x86, AIX á IBM pSeries og Linux á IBM zSeries er nú í útgáfu 4.4.5.

Auk nokkura minniháttar lagfæringa kynna þessar nýju útgáfur til sögunnar tól sem auðveldar þjónustufulltrúum okkar að leysa úr vandamálum sem kunna að koma upp. Auk þess hefja nú allar útgáfur Lykla-Péturs fyrir UNIX stýrikerfi uppfærsluferli veirugagnaskráa um leið og uppsetningu er lokið.

*(Athugið að vegna tæknilegra atriða mun Debian pakkinn fyrir Linux ekki hefja uppfærsluferlið sjálfkrafa heldur þarf að uppfæra veirugagnaskrár handvirkt strax að lokinni uppsetningu).

Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Linux x86, BSD x86, Solaris SPARC, Solaris x86, AIX á IBM pSeries og Linux á IBM zSeries hvattir til að uppfæra forrit sín.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.

Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.