Reykjavík, 8. október 2004
Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir UNIX stýrikerfi
Nýjar útgáfur af Lykla-Pétri fyrir Linux x86, fyrir BSD x86, fyrir Solaris x86, fyrir Solaris SPARC, fyrir AIX á IBM pSeries og fyrir Linux á IBM zSeries hafa nú verið gefnar út. Útgáfunúmer Lykla-Péturs fyrir þessi stýrikerfi er nú 4.4.7.
Þessar nýjustu útgáfur lagfæra vandamál sem hafði áhrif á skimun pósts á einstaka póstþjóni. Af þessari ástæðu ættu notendur Mail Scanner hluta forritsins að uppfæra sem fyrst.
Notendur Lykla-Péturs fyrir Linux x86, fyrir BSD x86, fyrir Solaris x86, fyrir Solaris SPARC, fyrir AIX á IBM pSeries og fyrir Linux á IBM zSeries eru hvattir til að uppfæra forrit sín.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri.
Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
