FRISK Software International

FRISK Software International


Reykjavík, 5. október 2004

Ný og endurbætt útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Windows

Útgáfa 3.15b af Lykla-Pétri fyrir Windows hefur nú verið gefin út. Þessi nýjasta útgáfa er gefin út vegna Windows öryggisholu sem Microsoft tilkynnti nýlega.

Öryggisholan fannst í tækni sem notuð er við vinnslu JPEG mynda og hrjáir því stóran hluta þess hugbúnaðar sem styður þá skráartegund. Útgáfa 3.15b af Lykla-Pétri fyrir Windows kemur í veg fyrir að veirur, ormar eða annar illgjarn hugbúnaður geti nýtt sér þessa öryggisholu og sýkt þannig tölvur notenda.

Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Windows hvattir til að uppfæra forrit sín í útgáfu 3.15b við fyrsta tækifæri.

Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri. Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.