Reykjavík, 3. desember 2004
Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Windows
Útgáfa 3.16a af Lykla-Pétri fyrir Windows hefur nú verið gefin út. Þessi nýjasta útgáfa býður upp á þó nokkrar nýjungar og veitir notendum enn meira öryggi og betri vörn en nokkru sinni fyrr.
Meðal þeirra nýjunga sem útgáfa 3.16a af Lykla-Pétri fyrir Windows kynnir til sögunnar eru nýjar aðferðir til að ganga úr skugga um að notendur hafi ávallt nýjustu veirugagnaskrár uppsettar. Útgáfa 3.16a beitir einnig nýjum og betri aðferðum við að bera kennsl á og stöðva áður óþekktar veirur og orma sem birtast daglega.
Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Windows hvattir til að uppfæra forrit sín í útgáfu 3.16a við fyrsta tækifæri.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri. Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
