Reykjavík, 8. mars 2005
Ný útgáfa af Lykla-Pétri fyrir Windows
Útgáfa 3.16b af Lykla-Pétri fyrir Windows hefur nú verið gefin út.
Útgáfa 3.16b af Lykla-Pétri fyrir Windows býður upp á bætta meðhöndlun á UPX og EML skrám og ber einnig kennsla á fleiri skráarsprengur (e. archive bombs) en áður. Skráarsprengja er þjöppuð skrár sem inniheldur aðra þjappaða skrá sem inniheldur aðra eins og þannig koll af kolli, oft niður í hundruðir skráa. Slíkar skrár eru oft tilraun til að koma veirum og ormum framhjá veiruvarnarforritum. Útgáfa 3.16b inniheldur einnig nokkrar aðrar minniháttar breytingar.
Vegna þessara breytinga eru notendur Lykla-Péturs fyrir Windows hvattir til að uppfæra forrit sín í útgáfu 3.16b við fyrsta tækifæri.
Til þess að uppfæra Lykla-Pétur þarf að smella á hnappinn 'Innskráning' neðst á hnappastikunni hér til vinstri. Sláðu inn viðskiptanúmer þitt. Þá kemur upp síða með hlekkjum á þær útgáfur Lykla-Péturs sem þú hefur keypt. Smelltu á nafn forritsins sem þú vilt sækja og veldu 'Save'. Vistaðu skrána á harða drifinu. Þegar skráin hefur verið sótt skaltu ræsa hana og Lykla-Pétur mun þá leiða þig í gegnum uppsetningarferlið.
